Baltimore
Baltimore er stærsta borg Marylandríkis í Bandaríkjunum. Hún liggur miðsvæðis í fylkinu, milli Patapsco árinnar og Chesapeake flóans. Borgarhlutinn er oftast kallaður Baltimore-borg sem greinir hana frá aðliggjandi Baltimore-sýslu.
Baltimore | |
|---|---|
Innri höfnin í Baltimore | |
| Hnit: 39°17′11″N 76°36′54″V / 39.28639°N 76.61500°V | |
| Land | |
| Fylki | |
| Sýsla | Engin |
| Mannfjöldi (2020)[1] | |
| • Samtals | 585.708 |
| Tímabelti | UTC−05:00 (EST) |
| • Sumartími | UTC−04:00 (EDT) |
| Vefsíða | www |
Íbúar borgarinnar sjálfrar voru 585.708 árið 2020 en á Baltimore-Washington stórborgarsvæðinu svonefnda eru taldar búa tæplega tíu milljónir manna. Borgin er ein mikilvægasta hafnarborg Bandaríkjanna og hefur verið það síðan á 19. öld þegar næstflestir innflytjendur til Bandaríkjanna komu um hana. Þá var hún einnig næststærsta borg landsins.
Saga
breytaBaltimore byrjaði að byggjast 1729. Baltimore er stærsta hafnarsvæði mið-Bandaríkjanna og er nær mörkuðum miðvesturríkjanna en nokkur önnur hafnarborg á austurströndinni. [2] Inner harbor svæði borgarinnar var eitt sinn ein helsta gátt innflytjenda til Bandaríkjanna og stór iðnaðarborg. [3] Eftir að iðnaður lagðist mikið til niður í borginni þá breyttist efnahagur borgarinnar yfir í meiri þjónustu en iðnað.
Íbúar borgarinnar sjálfrar voru árið 2010 620.961 en á Baltimore-Washington stórborgarsvæðinu svonefnda eru taldar búa um 8,4 milljónir manna.[4]. Borgin er ein mikilvægasta hafnarborg Bandaríkjanna og hefur verið það síðan á 19. öld þegar næstflestir innflytjendur til Bandaríkjanna komu um hana. Íbúafjöldi hefur þó dregist saman um þriðjung síðan 1950 er íbúafjöld náði hámarki sínu. Á Baltimore svæðinu búa um 2,7 milljónir manna samkvæmt opinberum tölum árið 2010. Baltimore er 21. stærsta borg landsins.[5]
Borgin er nefnd eftir Lord Baltimore, meðlimi á írsku lávarðadeildinni og upphafsmanni Maryland nýlendunnar. Baltimore er ensk útgáfa írska-gelíska frasans Baile an Tí Mhóir, sem þýðir ‚Borg hins stóra húss‘[6]. Ekki skal rugla borgarnafninu saman við Baltimore, í Cork sýslu á Írlandi sem er nefnd Dún na Séad.[7]
Tilvísanir
breyta- ↑ „US Census – Baltimore, Maryland“. United States Census Bureau. Sótt 9. september 2025.
- ↑ Hughes, Joseph R. „Inland port gives Baltimore strategic shipping advantages“. Washington Examiner. Sótt 23. júní 2011.
- ↑ „Baltimore Heritage Area“. Maryland Historical Trust. 11. febrúar 2011. Sótt 30. desember 2011.
- ↑ „Annual Estimates of the Population of Combined Statistical Areas: April 1, 2000 to July 1, 2009“ (CSV). 2009 Population Estimates. United States Census Bureau, Population Division. mars 2010. Sótt 31. mars 2010.
- ↑ „Metro Area Factsheet: Baltimore, Maryland PMSA“. FAIR US. Sótt 31. desember 2011.
- ↑ „Placenames“. n-ireland.co.uk. Afrit af upprunalegu geymt þann 30. apríl 2007. Sótt 29. mars 2007.
- ↑ „Placenames Database of Ireland“. Sótt 4. apríl 2009.
Tenglar
breyta- City of Baltimore official website
- Visit Baltimore – official Destination Marketing Organization
- Baltimore City Maps Geymt 11 desember 2012 í Archive.today, historic maps at the Sheridan Libraries.